Paradís

Paradís

Lína langsokkur var móðurlaus og horfði oft upp í himininn og hugsaði um mömmu sína. Henni fannst hliðin sem að okkur snýr – öfuga hliðin á himninum – vera falleg og dró því þá ályktun að hin hliðin hlyti af vera enn betri fyrst rangan væri svona flott.

Lína langsokkur var móðurlaus og horfði oft upp í himininn og hugsaði um mömmu sína. Henni fannst hliðin sem að okkur snýr - öfuga hliðin á himninum - vera falleg og dró því þá ályktun að hin hliðin hlyti af vera enn betri fyrst rangan væri svona flott.

Hvernig hugsar fólk um himininn? Veraldarvefurinn sýnir að hann er fólki hugstæður. Ég fletti upp á Google og komst að því að 580 milljónir síðna koma upp þegar leitað er undir orðinu heaven.

Hvernig er himnaríki? En hugmyndir fólks eru mismunandi. Allir foreldrar þekkja glímuna við að skýra út dauðann fyrir börnum, lífsför langömmu eða afa til Guðs. Síðan er okkur ætlað að skýra hvar Guð býr og hvar ekki. Barnið gerir sér bókstaflegar hugmyndir og ímyndir.

Í Gullna hliðinu notaði Davíð Stefánsson - í viðbót við stefin úr Opinberunarbók Jóhannesar - kotbændatúlkun á himinhliðinu. Húmor er til hjápar við að nálgast flókin mál, en kannski fjallaði Gullna hliðið fremur um meðvirkni eiginkonu hins látna en ferð þeirra hjóna til himins!

Í Islam hefur paradísardýrðin verið útmáluð með munúðarfullum sögum um líkamsnautnir hinna hólpnu múslima í Paradís. Í fornöld vildu norrænir spennufíklar og dýrkendur hermennsku gjarnan halda leikjum áfram. Í Valhöll var þjáningu og hryllingi stríðsins sleppt en haldið í gamanið. Spíritistar fregnuðu á sínum tíma að himinvíddir væru alla vega sjö og sálin færi mishratt um þær veraldir á þroskaferli sínum. Joe Hill talaði um “You’ll get pie in the sky, when you die.” Astrid Lindgren lýsti dásamlegri veröld í Rósadal Nangijala í Bróðir minn Ljónshjarta, sem flestir íslenskir krakkar hafa heyrt eða lesið. Himnaríkið sem Astrid Lindgren lýsti var því þróunarveröld rétt eins sálarheimar spíritista.

Frá hinu þekkta til hins óþekkta Hvernig verða himnaríkismyndir til? Eins og barnið sem sér stjörnurnar og skilur með sínum forsendum eru við öll misstór börn sem liggjum á bakinu, störum upp í himininn og skiljum og tjáum með okkar viti hvað verður. En orð um aðra veröld eru ekki og verða aldrei sannanleg lýsing. Við getum aldrei talað um himininn með öðrum hætti en sögum og líkingum. Myndmálið er notað til að tjá það sem við höfum hugboð um, dreymir um og berum vonarhug til.

Til að staðsetja trúarhugmyndir okkar sem varða himnaríkið og framhaldið ættum við íhuga fyrst hvernig við manneskjurnar hugsum. Það er mikilvægt að minna okkur á eðli lærdóms og náms, við byrjum alltaf þar sem við erum, lærum út frá því sem við kunnum, skiljum alltaf út frá hinu þekkta.

Himinvarp Munum að menn varpa þrá og djúpsettum hugmyndum upp á himinn vonanna. Það þarf ekki mikið hugarflug til að gera sér grein fyrir að þá múslima, sem dreymdi munúðarfulla drauma um tilkippilegar meyjar, voru kynsveltir karlar. Kannski má sjá í Elýsesískri þægindaveröld Grikkja vörpun á vonum þeirra, sem var annað hvort of heitt eða kalt. Vísast var Valhallarveröldin draumur hermanna og spennufíkla, sem þráðu hermennsku og spennuna áfram - en án hryllings stríðsins, Playstation-leikur þess tíma. Gulli slegin hús og prýdd veröld himnaríkis er vörpun á þrá hins fátæka manns. Kannski er Disneyland einna besta raungering hinna barnalegu drauma.

Himnaríkið þitt Hvert er þitt himnaríki? Farðu inn í vonir þínar og tjáðu þitt himnaríki. Það er mikilvægt og frjótt að vinna það verk því þá lærir þú betur að þekkja þig. Þér mun örugglega ekki takast að búa til himininn. En ef þér lánast vel gerir þú þér kannski betur grein fyrir takmörkunum sjálfs þín og mörkum hinnar mannlegu ímyndunar og skilnings.

Búa ykkur stað Verið ekki áhyggjufull, segir Jesús við vini sína í guðspjalli dagsins. Ég fer frá ykkur til að undirbúa framtíðarveröld ykkar, búa ykkur stað því vistarverur guðsríkisins eru svo margar að komu ykkar þarf að undirbúa. Tómas, sem hlustaði á tal Jesú, var jarðtengdur og viðurkendi að hann skildi Jesú ekki - vissi ekki hvaða leið lægi til ríkis Guðs föður og hvernig himnaríkið yrði. Hvernig eigum við að vita hvaða leið við eigum að fara?

Jesús tekur af allan vafa, að það sé hann sem opnar hliðið, það sé hann sem gerir veginn og segir efasemdarmanninum Tómasi, að hann sé vegurinn sjálfur, sannleikurinn og lífið. Þar með gerði hann grein fyrir himninum, skýrði út eðli og gerð hans.

Fósturhugmyndir Oft horfi ég dáleiddur á litlu börnin sem ég skíri og velti vöngum yfir upplifunum þeirra og hugsunum. Hvað hugsar Helena sem var vatni ausin áðan? Hún varð meðlimur í björtum heimi fegurðar himinsins. Einu sinni varstu svona peð. Hvað hugsaðir þú, hvernig var veröld þín? Var hún ekki talsvert ólík veröld þinni nú? Hvað hugsaðir þú þegar þú enn varst í móðurkviði?

Gastu ímyndað þér veröldina þegar þú varst þar inni? Þú heyrðir hljóð, fannst til með móður þinni, fékkst innskot af adrenalíni í æðar þínar, þegar hún var hrædd eða spennt, fannst fyrir vellíðan hennar, þegar henni leið vel, slakaðir á í kyrrð mömmunnar. Þú fannst fyrir veröldinni utan bumbunnar en skildir hana ekki. Vissir ekkert um liti hennar, fannst ekki fyrir vindinum, sást ekki fuglana, ásjónur þeirra sem elskuðu þig, vissir ekkert um útlit herbergjanna eða vistarveranna, sem fjölskylda þín bjó í.

Vissir þú - bumbubúinn - nokkuð um bíla, neyslu, liti heimsins, leikföng eða þingkosningar? Þú varst sprellifandi, en smátilveran var þér fullkomlega nægileg. En þó tilveran væri stærri en móðurlegið skildir þú hana ekki.

Þú og öll börn fæðast fákunnandi um veröldina. Það er nóg sem gefið er til að hefja lífið. Kunnáttan, skilningurinn kemur síðar þegar þroskinn vex í þessari raunveröld okkar. Eitt skref í einu og góðir hlutir gerast hægt.

Hin stórkostlega fæðing Hvað tekur við? Hvernig verður hinum megin? Getur þú skilið það? Þó að þú hafir ekki getað ímyndað þér nema lítillega þegar þú fæddist þá tók tilveran við og var margbreytileg og fjölskrúðug. Þó þú getir ekki ímyndað þér hvernig eilífa lífið verður getur það orðið mun stórkostlegra en þú getur ímyndað þér.

Margir eiga í vandræðum með trú og eru kvíðnir gagnvart óvissuferðinni inn í eilífðina. Fólk á í erfiðleikum með hvað við tekur og ímyndar sér, reynir að fá botn í hugsanir sínar, uppgötva með skynsemi sinni hvað við tekur.

Að vera kristinn er að fylgja Jesú alla leið. Hann dó en lifir. Þú munt deyja, allt þitt fólk mun deyja, en Jesús vill að þú og þínir rísið upp til eilífs lífs. Hann fór alla leið og leiðir þig líka.

Þú mátt horfa með augum barnsins og ímynda þér réttuna á himinum. Þú mátt gera þér grein fyrir að allt eru þetta aðeins vísbendingar því þú ert í móðurkviði náttúrunnar. Þú átt eftir að fæðast til réttunnar, inn í Guðsfaðminn. Jesús Kristur er búinn að hanna og smíða stórkostlega veröld með vistarverum handa þér. Ég get ekki sagt þér hvernig hún verður bókstaflega því hið biblíulega málfar er líka myndmál, hliðstæðu-orðræða. Þú mátt trúa Jesú um að hann sé nærri og það er aðalatriðið.

Ferðin þín inn í eilífðina byrjar ekki í framtíð, heldur í bernsku þinni, þegar rétta himinsins umvafði tilveru þína við skírnarfontinn. Hið fagra líf eilífðar byrjaði í skírninni. Þú ert á meðgönguskeiði en fæðing til himins verður síðar. Lífið er meðganga anda þíns og sálar og mikilvægt að nota það til að andleg líffæri nái að þroskast vel. Stressaðu þig ekki yfir þótt þú skiljir ekki öll hljóð og áhrif himinsins nú þótt þau berist þér í gegnum náttúrubumbuna og móðurleg kirkjunnar. Þegar þú deyrð, fæðist þú til nýrrar tilveru og þá muntu sjá ljós, liti og dýrð sem tekur fram öllu því sem þú ímyndar þér á fósturskeiði trúar þinnar. Spennandi? Já svo sannarlega því lífið lifir fyrir Jesú Krist.

Prédikun flutt í Neskirkju 3. sd. eftir páska, 21. apríl 2013

Textar skv. B-röð Sl 126 2. kor 4.14-18 Jóh 14.1-11