Skref til framtíðar stigið í Eyjafirði

Skref til framtíðar stigið í Eyjafirði

Í aðdraganda jóla var ég á hliðarlínunni í samstarfsverkefni fulltrúa Mæðrastyrksnefndar Akureyrar, Hjálpræðishersins, Rauða krossins og Hjálparstarfs kirkjunnar um að aðstoða einstaklinga og fjölskyldur í Eyjafirði, sem áttu erfitt með að ná endum saman fyrir jól. Þó svo að aðstæður margra sem sóttu um væru grátlegar þá var samtakamátturinn sem þarna birtist í alla staði ánægjulegur.

petur-straeto2

Í aðdraganda jóla var ég á hliðarlínunni í samstarfsverkefni fulltrúa Mæðrastyrksnefndar Akureyrar, Hjálpræðishersins, Rauða krossins og Hjálparstarfs kirkjunnar um að aðstoða einstaklinga og fjölskyldur í Eyjafirði, sem áttu erfitt með að ná endum saman fyrir jól. Þó svo að aðstæður margra sem sóttu um væru grátlegar þá var samtakamátturinn sem þarna birtist í alla staði ánægjulegur. Fjölbreyttur bakgrunnur fulltrúa þessara fjögurra samtaka gerði aðstoðina markvissari. Með samstarfinu nýttist tími þeirra sem að hjálpinni komu sem og þeirra sem aðstoð sóttu mun betur, því nú sótti hver um aðeins einu sinni, á einum stað.

Staðsetning skiptir máli

Fulltrúar Mæðrastyrksnefndar sáu um að taka á móti umsóknum og meta þær. Fyrir þá vinnu fékk nefndin aðstöðu hjá verkalýðsfélaginu Einingu í miðbæ Akureyrar. Þangað kom fólk til viðtals og þar var innkaupakortum úthlutað. Með þeim gat hver og einn keypt inn í jólamatinn eftir eigin höfði. Einnig var fólki vísað á betri föt á markaði Rauða krossins og Hjálpræðishersins, jólapökkum sem safnast höfðu á Glerártorgi var dreift og öðrum gjöfum var komið á framfæri eftir því sem við átti. Hér verður að teljast sérstaklega heppilegt að þessi öflugu samtök eru til húsa við sama götuhornið og að auðvelt er að komast þangað með strætó – sem eins og alþjóð veit er ókeypis á Akureyri.

Hvað er hægt að gera meira? Ýmsar hugmyndir

Um leið og horft er til þess að laga agnúa á verkefninu, t.d. að bæta símsvörun verkefnisins fyrir næstu jól, tel ég að skoða mætti talsmannshlutverkið. Hvort eða hvernig samstarfshópurinn geti beitt sér fyrir því að kjör þeirra sem sækja um jólaaðstoð verði  almennt betri. Þá mætti vita hvort að hluti af jólaaðstoðinni gæti farið fram í janúar í formi ráðgjafar. Þar á ég við að þeir sem sækja um aðstoð séu spurðir hvort megi bjóða þeim ókeypis ráðgjöf á nýju ári. Með því opnaðist sú leið að setjast niður með viðkomandi og skoða í sameiningu hvort að í fjármálum eða aðstæðum viðkomandi sé að finna áskoranir sem breyta megi í viðráðanleg verkefni sem leiði til betri aðstæðna.

Skautað framhjá hyldýpi væmninnar - TAKK

Fjöldi fólks lagði á sig mikla sjálfboðna vinnu til þess að gera þetta verkefni að veruleika. Þeirra framlag verður seint þakkað og erfitt að koma á framfæri þakkarorðum án þess að falla í hyldýpi væmninnar. Að sama skapi eigum við sem stöndum að baki verkefninu engin orð sem lýst fá þakklæti okkar í garð verkalýðsfélaganna, félagasamtaka, fjölda fyrirtækja og einstaklinga sem styrktu verkefnið með samtals 7,3 milljónum, peningum sem gerðu okkur kleift að standa fyrir jólaaðstoð í Eyjafirði árið 2013. Því höfum við valið að segja einfaldlega TAKK og vonum og treystum því að allir skilji að það kemur beint frá hjartanu.