Við sáum dýrð hans, ummyndunin

Við sáum dýrð hans, ummyndunin

Í dag er síðasti sunnudagur eftir þrettánda og bænadagur á vetri. Guðspjall dagsins fjallar um það er Jesús ummyndast fyrir augum lærisveina sinna og dýrð hans varð þeim opinber. Það sem fram fer í kirkjunni snýst um trúna á Jesú, bróðurinn besta, og göngu okkar á lífsins vegi. Þannig erum við öll börn Guðs og systkin í trúnni. Hér í kirkjunni koma saman Íslendingar og fólk af erlendu bergi brotið, fátækir og ríkir. Margt af því er fólk á flótta.
Mynd

Við sáum dýrð hans

 

Flestum finnst spennandi að heimsækja nýjar slóðir og kanna eitthvað nýtt. Aðrir ferðast vegna áhugamála og tómstunda eða aðeins til að slaka á. Best er að geta blandað þessu saman. Ég átti þess kost að ferðast til Ísraels s.l. haust ásamt fleiri Íslendingum. Á ferð okkar um biblíuslóðir komum við til borgarinnar Kana í Galíleu. Við heimsóttum, eins og aðrir kristnir pílagrímar, kirkjuna þar sem talið er að Jesús hafi gert sitt fyrsta kraftaverk. Eins og víðast hvar annars staðar er búið að grafa upp fornminjar sem benda til kraftaverksins. Í kjallara kirkjunnar eru feikna stór steinker, vatnsker, svipuð þeim sem um er rætt í frásögn guðspjallsins. Þessa morgunstund sem við vorum í kirkjunni kom mikill fjöldi fólks. Sumir voru aðeins að skoða staðinn og fornleifarnar, en aðrir komu til að gifta sig. Þennan morgun var fjöldi para frá Filippseyjum, sem gagngert komu alla þessa leið til að ganga í hjónaband. Þið getið rétt ímyndað ykkur gleðina og hamingjuna sem lýsti af pörunum. Það var hrein og bein upplyfting að vera þarna innan um þetta hamingjusama fólk.

Það var einnig ógleymanleg upplifun að sitja í litlum hellisskúta á Betlehemsvöllum og lesa jólaguðspjallið. Þar er einnig kirkja helguð fjárhirðunum. Í þeirri kirkju eru sungnir jólasöngvar alla daga. Þegar við Íslendingarnir komum hjómaði þýskur jólasálmur og ferðamaður las jólaguðspjallið á sínu móðurmáli. Við sungum nokkur vers af sálminum Í Betlehem er barn oss fætt. Á meðan við vorum að syngja kom inn hópur frá Suður Ameríku. Þannig er stöðugur straumur ferðamanna á flestum stöðum er tengjast sögum Biblíunnar. Þrátt fyrir þennan mikla fjölda og stundum örtröð, eins og í fæðingarkirkjunni í Betlehem og grafarkirkjunni í Jerúsalem, var afar merkilegt að koma á staðina, sem taldir eru vera næstir þeim stað er þeir gerðust. Sögurnar verða oft ljóslifandi. Einkum fanst mér það eiga við á bökkum Genesaretvatns. Þar starfaði Jesús mest þau þrjú ár er hann prédikaði og kenndi hér á jörð. Þar var fjallræðan flutt og úti í náttúrunni mettaði hann þúsundir með fáeinum brauðum og fiskum. Á vatninu sjálfu gerðust undur fyrir hans tilstilli, s.s. er hann kyrrði vind og öldur og kom gangandi til lærisveina sinna.

Við getum spurt okkur hvað það er sem við sækjumst eftir í landinu helga og á öðrum stöðum sem fjölsóttir eru af pílagrímum. Er það ekki að sjá með eigin augum umhverfi atburðanna, sem skipta svo miklu máli í lífi kristins fólks. Það er að reyna að nálgast söguna í gegnum fornleifar. En miklar fornminjar eru í Ísrael og á Vestur bakkanum. Síðast en ekki síst er það oft áhrifarík trúarleg upplifun, að lesa um atburðina á staðnum og í því umhverfi er þeir áttu sér stað, þó þúsundir ára skilji á milli í tíma. Kristnum manni er það næring fyrir trúna og sálina, að heimsækja hina helgu staði og þakka Guði og lofa hann fyrir það sem gerðist mannkyni til heilla.

Ummyndunin

Í dag er síðasti sunnudagur eftir þrettánda og bænadagur á vetri. Guðspjall dagsins fjallar um það er Jesús ummyndast fyrir augum lærisveina sinna og dýrð hans varð þeim opinber. Lærisveinarnir reyna að lýsa atburðum sem voru ólíkir öllu því sem þeir voru búnir að upplifa með Jesú. Þó voru þeir búnir að reyna margt. Þeir lýsa því hvernig Móses og Elía eru á tali við Jesú.

Það er þess virði að skoða það sem þessir tveir spámenn gerðu á sínum dögum. Móses leiddi lýð Guðs út úr Egyptalandi og yfir Rauða hafið. Það var hin stórkostlega björgun heillar þjóðar úr þrældómi og útlegð. Dauði Jesú á krossinum var meiri og stærri en björgun Móse á lýð Guðs út úr þrælahúsinu í Egyptalandi. Í  dauða og upprisu frelsarans er björgun hverrar manneskju fólgin, alls mankyns. Spámaðurinn Elía gekk á hólm við heiðna spámenn Jesebel drottningar og Akasar kóngs og hafði sigur. Í baráttu sinni var hann að verja fyrsta boðorðið: Ég er Drottinn Guð þinn, þú skalt ekki aðra Guði hafa. Það gerði hann með eldi og sverði. Jesús er hér hinn nýi Elía, sem gekk á hólm við allt veldi hins illa. Hann dó á krossi en reis upp frá dauðum. Sigrari dauðans sanni, sjálfur á krossi dó, og mér svo aumum manni, eilíft líf víst til bjó. Þannig orti sr. Hallgrímur.

 

Markús segir að Jesús hafi ummyndast og klæði hans hafi orðið fannhvít og skínandi, og Lúkas bætir við, að andlit hans hafi breyst. Þetta er í samhljóman við frásögnina af því þegar Móses kom ofan fjallið með boðorðin tíu og andlit hans geislaði svo að fólk varð hrætt. Lærisveinarnir reyna að lýsa því, að hér hafi verið meira en endurskin af dýrð Guðs. Jesús skein allur sjálfur, innan frá og út. Með þessu orðalagi eru þeir að reyna að tjá að Jesús sé sjálf guðsbirtingin, sjálfur Guð, því klæði hans hafi ekki getað hindrað ljómann, heldur hafi þau orðið björt og skínandi. Jóhannes orðar það þannig í guðspjalli sínu: „Vér sáum dýrð hans, dýrð sem sonurinn eini á frá föðurnum.“ Jóh. 1:14

 

Pétur bauðst til að búa spámönnunum tveimur og Jesú tjaldbúð. Sams konar og Gyðingar útbjuggu sér á laufskálahátíðinni til að minna sig á útlegðartíma sinn í eyðimörkinni. Áður en hann fær ráðrúm eða svar heyrðu lærisveinarnir rödd sem kom úr skýinu og sagði hin sömu orð og heyrðust við skírn Jesú: „Þessi er minn elskaði sonur,“ en nú bættust við orðin: „hlýðið á hann.“ Orð Guðs úr skýinu staðfestu að Jesús var spámaðurinn, sem Guð hafði lofað að senda. Við heyrðum lesið í lexíu dagsins:„ Spámann slíkan sem ég er mun Drottinn, Guð þinn, láta fram koma úr hópi ættbræðra þinna. Á hann skuluð þið hlýða.“ (5. Mós 18.15) Hér var komin staðfesting þessa og enn fleiri spádóma um Krist, sem Guð myndi senda. En hér var meira en spámaður. Þetta staðfesti Pétur með orðum sínum: "Því hann meðtók af Guði föður heiður og dýrð þá er raust barst honum frá hinni dýrlegu hátign: „Þessi er minn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á.“ Þessa raust heyrði ég sjálfur koma frá himni þá er ég var með honum á fjallinu helga."

 

Nýja testamentið dregur upp algjörlega einstæða mynd af Jesú. Hún er dregin upp af guðspjöllunum, lýst með lífi og starfi Jesú, boðun og kraftaverkum, þjáningu hans, dauða og upprisu. Ummyndunin á fjallinu er aðeins einn hlekkur í keðjunni. Þar fáum við að líta Jesú eins og hann er, birting Guðs sjálfs. Bjarminn, ljósið, skinið, orðin úr skýinu, sýndi hver hann var. Immanúel, Guð með oss.

Við sáum dýrð hans. Það var vitnisburður lærisveinanna. Megi orð þeirra styrkja trú okkar í daglegu lífi.

 

Breiðholtskirkja

 

Það sem fram fer í kirkjunni snýst um trúna á Jesú, bróðurinn besta, og göngu okkar á lífsins vegi. Þannig erum við öll börn Guðs og systkin í trúnni. Hér í kirkjunni koma saman Íslendingar og fólk af erlendu bergi brotið, fátækir og ríkir. Margt af því er fólk á flótta. Við bjóðum það innilega velkomið, því þau eru systkin okkar. Sum fá landvistarleyfi og verða Íslendingar. Á meðan þau eru hér á landi vill kirkjan koma til hjálpar, gera sitt til að styðja, styrkja og hjálpa.

Þó svo starfið í söfnuðinum sé mikið og líflegt, er alltaf pláss fyrir enn meira starf. Vöxturinn er mestur í starfi meðal hælisleitenda og fólks á flótta og er það vel. Ný viðbót við það starf er, að eftir hádegi á fimmtudögum opnum við safnaðarsalinn fyrir samverur á vegum Alþjóðlega safnaðarins í Breiðholtskirkju.

En til þess að allt fari vel fram þarf gott hús. Það ánægjulega er, að nú hefur tekist að fjármagna viðgerð á þaki kirkjunnar. Útboð fer fram í þessum mánuði og viðgerð í sumar og haust. Þetta er mikið gleðiefni fyrir söfnuðinn. Sumt af starfinu í kirkjuskipinu, eins og bænastundirnar, verða fluttar á neðri hæðina á meðan á viðgerð stendur, en messur og athafnir í aðrar kirkjur. Nýlega sameinuðust Fella- og Hólaprestakall og Breiðholtsprestakall í eitt. Þannig að kirkjurnar í efra og neðra Breiðholti eru nú eitt prestakall. Það leiðir til aukinnar samvinnu og samhjálpar á milli þeirra. Það mun efla kirkjulegt starf í Breiðholti.

Í dag er bænadagur á vetri. Veturinn hefur verið erfiður mörgum á landinu okkar. Manntjón og eignatjón hefur orðið, vegna óveðurs og snjóflóða. Nú eru fréttir um hugsanlegt eldgos nærri byggð. Við búum í landi elds og ísa. Á það erum við minnt um þessar mundir. Við biðjum fyrir þeim, sem eiga um sárt að binda og einnig að Guð varðveiti og verndi landsmenn alla, byggð og fyrirtæki, en sérstaklega skulum við hafa í huga Grindvíkinga og Suðurnesjamenn á óvissutímum. Sameinumst í bæn fyrir landi og þjóð á eftir sálminum Til þín Drottinn hnatta og heima eftir Pál Kolka með lagi eftir Þorkel Sigurbjörnsson.

 

Röddin úr skýinu sagði: þessi er minn elskaði sonur, hlýðið á hann. Jóhannes guðspjallamaður sagði: Við sáum dýrð hans. Jesús, bróðir okkar og frelsari, birtir okkur Guð og kærleika hans. Hann er hjá okkur og gengur okkur við hlið alla daga allt til enda. Það er vitnisburður kirkjunnar, trúaðra karla og kvenna, á öllum öldum. Guð gefi þér og þínum æðruleysi, kjark og frið.