Gæsir og englar

Gæsir og englar

Sum okkar lesa jólin úr augum barnanna, aðrir heyra klukkurnar kalla og finna hjartað svella í brjósti sér. Sum tengja komu jólanna við gamalkunna lykt eða skraut eða hefð. Sum hafa aldrei fundið fyrir jólum, kenna einungis tóms og pirrings yfir öllu jólaveseninu. Svo eru þau til sem jólin koma að óvörum, eins og gæs sem maður mætir við Tjörnina á annasömum degi.

Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi. Og gleðileg jól öll sömul!

Um daginn var kona á leið frá Ráðhúsi Reykjavíkur yfir á Lækjargötu. Hún gekk hratt, því nóg var að gera og snaraðist fyrir hornið á milli Iðnó og safnaðarheimilis Dómkirkjunnar. Þar mætti konan grágæs, sem var á vappi í snjónum og virti fyrir sér umferðina. Andartak virtu gæsin og konan hvor aðra fyrir sér, svo leit gæsin undan því gæsum er ekki vel við að horfa djúpt í augun á mannfólkinu. Konan og gæsin tvístigu nokkra stund eins og tvær kurteisar konur í Kringlunni, önnur í svörtum skóm og kápu, hin í fiðurpels, með hvítt brjóst og í grábleikum stígvélum. Svo rak gæsin upp hvellt garg, konan vék til hliðar og horfði á gæsina taka flugið út á Tjörnina.

Það er hægt að horfa á gæsir á margan hátt. Gæsir hafa lengi verið taldar á Íslandi og því er hægt að fylgjast með ferðum þeirra. Grágæsir eins og sú sem mætti konunni við Tjörnina verpa og halda sig nálægt sjó. Flestar fljúga til Bretlandseyja yfir veturinn en allnokkur hópur heldur sig í nánd við Reykjavíkurtjörn allt árið. Við getum horft á gæs og velt fyrir okkur hvaðan hún kemur, hvort hún sé merkt, hvort hún sé stygg, hvort hún sé góð í matinn og hvar hún verpi. Við getum velt því fyrir okkur hvort hún muni drita á höfuðið á okkur eða bíta okkur í nefið með gogginum sínum. Allt eru þetta skynsamlegar ályktanir af því sem fyrir augu okkar ber þegar við mætum gæs. En lífið er meira en talningar, matur í maga og viðbrögð við hugsanlegri árás. Lífið er líka ljóð, og í kvöld þegar við kyrrum hugann og látum hann berast að lítilli jötu í Betlehem, er tími til að láta ímyndunaraflið fljúga litla stund. Eins og gæs, sem flýgur framhjá konu og tekur strikið út á Tjörnina.

    II.

Í þessari jólaprédikun langar mig til að tala um fljúgandi engla, Eins og við hæfi er á helgri jólanótt. Mig langar líka til að tala um fljúgandi gæsir. Mig langar til að tala við ykkur um englana sem eru út um allt, Að allir skapaðir hlutar geti orðið okkur að engli, Ef við höfum augu á höfðinu Og erum á höttunum eftir táknum um návist Guðs.

Þess vegna langar mig til að lesa fyrir ykkur ljóð skáldkonunnar Mary Oliver um Villigæsirnar í þýðingu Gyrðis Elíassonar:

Þú þarft ekki að vera góður, þú þarft ekki að skríða á hnjánum hundrað mílur yfir eyðimörkina, iðrandi. Þú þarft aðeins að leyfa blíðu dýrinu í þér að elska það sem það elskar. Segðu mér frá örvæntingu þinni og ég skal segja þér frá minni. Á meðan heldur veröldin áfram. Á meðan halda sólargeislar og tærar glerperlur regnsins áfram að líða yfir landslagið, yfir slétturnar og djúpa skóga, fjöllin og árnar. Á meðan eru villigæsirnar, hátt á bláum og tærum himni, á heimleið á ný. Hver sem þú ert, sama hve einmana þú kannt að vera, þá býður heimurinn sig fram fyrir þig og hugarflug þitt, kallar til þín eins og gæsirnar, hvellt og upplífgandi- tilkynnir þér aftur og aftur þinn stað í fjölskyldu alls lífs.

Það eru komin jól og jólin þau kalla okkur til sín með ýmsu móti. Sum okkar lesa jólin úr augum barnanna, aðrir heyra klukkurnar kalla og finna hjartað svella í brjósti sér. Sum tengja komu jólanna við gamalkunna lykt eða skraut eða hefð. Sum hafa aldrei fundið fyrir jólum, kenna einungis tóms og pirrings yfir öllu jólaveseninu. Svo eru þau til sem jólin koma að óvörum, eins og gæs sem maður mætir við Tjörnina á annasömum degi.

Gæs er frábrugðin manneskju, Og það er einmitt annarleiki dýrsins sem tengir það og manneskjuna saman í öllu því fjölbreytta hugarflugi sem heimurinn gefur og í frið og gleði yfir því einu að vera til ef þér tekst

að leyfa blíðu dýrinu í þér að elska það sem það elskar

ef þér tekst að vera óhrædd og óhræddur hefja þig upp yfir litla heiminn þinn sem þrengir að þér og taka þátt í hinum stóra heimi

í fjölskyldu alls lífs.

    III.

Jólin koma með sinni gamalkunnu frásögn af barninu í jötunni í Betlehem. Lúkasarguðspjall segir frá hirðum úti í haga sem gættu hjarðar sinnar og vissu ekki til þess að neitt markvert hefði gerst í nágrenninu. Öllum að óvörum birtist þeim engill sem sagði að þeir skyldu ekki vera hræddir lengur, því að að frelsarinn væri fæddur í borg Davíðs. Og loftin öll fylltust af englum sem sungu Guði dýrð og fluttu fagnaðarboðskapinn um frið á jörðu.

Englar eru á listaverkum málaðir eins og menn með geislabaug Og stundum eins og lítil, þybbin börn. Ég hef aldrei séð svoleiðis engil, en ég hef fundið fyrir þeim og þeir hafa komið mér að óvörum. Englar gera menn stundum hrædda en koma þeirra er gjarnan gagngert tengd því að segja fólki að það þurfi ekki lengur að vera hrætt. Ég hef túlkað andartök og atvik sem heimsóknir engla og fundið ummerki um þá þegar ég hef þurft á þeim að halda jafnvel án þess að vita af þörf minni. Á þessari aðventu hef ég hitt allnokkra engla, sem leitast við að hjálpa þeim sem minna mega sín og bera gleði-, uppörvunar- og friðarorð þangað sem þörf er á. Og ég hef líka hitt engil í fuglslíki.

Angelos á grísku merkir sendiboði Sá sem kemur með merkilegar og óvæntar fréttir Fréttir sem bæði vekja hræðslu af því að þær eru óvæntar Og hjálpa til við að lægja hræðslu yfir öllu því sem steðjar að í einu lífi. Merkur guðfræðingur hefur talað um að englar séu fyrst og fremst táknmyndir um návist, frið og forsjón Guðs. Engill Drottins er birtingarmynd Guðs á hverju því formi sem manneskjurnar geta skilið og tengst. Þess vegna eiga englarnir sér ekki ævisögur og tilvist eins og mennirnir, þótt sumir eigi nafn. Þeirra hlutverk er að miðla ljósi, skilboðum um birtu og gleði inn í heim sem of oft gleymir sínu eigin hugarflugi, sinni eigin birtu, gleymir því að leyfa blíðu dýrinu í sér að elska það sem það elskar og finnur engan til að deila einmanaleika sínum, erfiðleikum og örvæntingu með.

Engillinn er er þannig eins og ljóskristall sem safnar í sig ljósinu Og sendir það frá sér aftur í nýjum, sterkum og ótrúlega fjölbreyttum myndum, Engill sýnir okkur margbreytileika ljóssins lætur okkur taka eftir ljósinu.

Engillinn er það sem hjálpar okkur til að endurskoða aðstæður okkar út frá nýju sjónarhorni greina möguleika í erfiðri stöðu finna æðruleysi, kjark og vit til að halda áfram inn í nýtt ár. Englarnir eru alls staðar og hvergi Þeir mæta okkur í óteljandi atvikum og við tökum oft ekkert eftir þeim.

Hirðarnir í sögunni tóku eftir englinum. Þeir upplifðu englasönginn, trúðu því að Messías hefði loksins fæðst að Guð hefði vitjað Ísraelsþjóðarinnar með barninu sem spáð hafði verið fyrir um. Og uppgötvun þeirra leiddi þá að hrörlega fjárhúsinu með nýfæddum frelsaranum í jötunni.

Ég velti því fyrir mér hvort englarnir hafi farið víðar um Betlehem þessa nótt. Kannski voru fleiri þungbúnir einstaklingar á kreiki í borg Davíðs Sem ekki tóku eftir englinum lásu ekkert nýtt út úr skilaboðunum voru hvorki hrædd Né heyrðu að nú þyrftu þau aldrei að hræðast meir. Kannski sáu þau aðeins gæsahóp fljúga yfir hæðirnar í kringum Betlehem. Kannski kom engillinn líka í heimsókn til gistihúseigandans og fjárbóndans og konunnar sem bakaði brauðin kannski voru það hirðarnir einir sem voru nógu barnslegir í sér til að sjá engil þar sem aðrir sáu ekki neitt veittu enga athygli og kærðu sig ekkert um. Kannski fór fæðing frelsarans gersamlega framhjá þeim.

Það voru hirðarnir sem uppskáru gleðina og friðinn sem fylgir því að eiga Jesúbarn að annast um. Það voru hirðarnir sem upplifðu helga nótt, Sindrandi fegurð og dásamlegan englasöng, Þar sem aðrir kunna að hafa séð Einungis enn eina ískalda desembernótt í myrkrinu.

    IV.

Á meðan heldur veröldin áfram. Á meðan halda sólargeislar og tærar glerperlur regnsins áfram að líða yfir landslagið, yfir slétturnar og djúpa skóga, fjöllin og árnar. Á meðan eru villigæsirnar, hátt á bláum og tærum himni, á heimleið á ný.

Ég er á þeirri skoðun að gæsin sem ég mætti við Tjörnina um daginn hafi verið engill. Ég veit ekki skilaboðin sem engillinn kom með Kann engin skil á hvellu garginu sem lét mig hrökkva í kút. Ég veit það eitt að eitthvað henti mig við Tjörnina um daginn Og það sem gerðist var gott og öruggt Og hjálpaði mér að fela jólin Guði Hlæja að gæsinni í staðinn fyrir að stressa mig yfir jólunum eða erfiðleikum og önnum á nýju ári. Ert þú að leita að hinu óvænta í hinu gamalkunna í kvöld, kæri kirkjugestur? Hefur þú húmor fyrir gæsum Og finnst gott að horfa í augun á englum?

Ég er ekki að meina að gæsir séu englar í dulargervi. Ég er ekki að meina að allar gæsir séu í rauninni englar. Ekkert af þessu eitt og sér eru englar. Allt, að þessu meðtöldu hefur möguleika á að vera öðrum engill. Tákn um návist Guðs Og hugarflug heimsins sem gefur sig þér.

Stundum verða óvænt atvik svo dýrmæt og sterk í einfaldleik sínum. Eins og sú gjöf að horfa litla stund í augu skepnu Sem er allsendis ólík mér, Sem aðeins gefst mér litla stund, Áður en hún tekur flugið út á Tjörnina og er mér tákn um heim sem er stærri og meiri en vangaveltur mínar um allt sem ég þurfti að gera fyrir jólin.

Ég las í augum þessarar furðuveru í fiðurkápunni, með brjóstið hvíta og í bleiku stígvélunum eitthvað styrkjandi, heilnæmt og gott um fjölskyldu alls lífs, sem ég tilheyri og sem þú tilheyrir en hvorugt okkar stjórnar, og um góða aflið sem tengir saman þessa fjölskyldu. Ég fann hvernig jólin strukust við mig litla stund Áður en þau flugu yfir Tjörnina.

Við eigum jól, ekki af því að við séum svo góð og höfum afrekað svo mikið, Heldur vegna þess að heimurinn og Guð gefa sig okkur hugarflugi okkar og hæfileikum til mennsku, gefur okkur tækifæri til að hugsa málin upp á nýtt, að ganga nýjan veg upplifa og gefa nýja gæsku og ný tækifæri sjá engla þar sem aðrir sjá bara skugga og svartnætti eiga nýtt upphaf og ný jól taka á móti hinu óvænta eiga frið eiga barn upplifa Guð í upphæðum og velþóknun yfir mönnunum eins og forðum í bænum Betlehem.

"Verið óhrædd, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum. Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn í borg Davíðs.“

Og þessi boðskapur frá Betlehem kallar til þín eins og gæsirnar,

hvellt og upplífgandi- tilkynnir þér aftur og aftur þinn stað í fjölskyldu alls lífs.

Dýrð sé Guði, föður og syni og heilögum anda, svo sem var í upphafi, er og verður um aldir alda. Amen.