Lífið er draumur

Lífið er draumur

Jósef var tengdur sínum innri manni. Hann þorði að hlusta á drauma sína og breyta um skoðun. Í honum bjó geta til að axla ábyrgð. Að hlusta á drauma er okkur nauðsyn og veröldinni lífsnauðsyn.

Þegar fólkið þitt spyr þig heima á eftir: “Hvernig var í messunni í Neskirkju?” þá getur þú svarað: “Það var alger draumur!” Jú, vegna þess að í kvöld íhugum við drauma í fornöld, draum Guðs og svo þinn eigin draum.

Í þrjú ár hafa viðhorf fermingarbarna Neskirkju verið könnuð með því að spyrja þau um lífsvonir þeirra og drauma. Í öll skiptin kom í ljós, að unga fólkið í hverfinu okkar þráir ekki bara hluti heldur dreymir 60-80% þeirra um, að fólkið þeirra og þau sjálf verði hamingjusöm. Draumar eru sterkir því þegar fólk vitjar þeirra hafa þeir tilhneigingu til að rætast.

Jósef kemur í ljós Jólasagan er lesin og leikin þessa dagana. Við þekkjum aðalpersónurnar, en svo Jósef þarna líka. Þó hann sé næstum ósýnilegur er hann þó miðlægur og við beinum sjónum að honum í kvöld.

Það var Jósef sem studdi heitmey sína á förinni til Betlehem. Hann hentist inn á alla gististaðina og fékk afsvör. Það var hann sem tók á móti barninu þegar það kom í heiminn, skildi á milli og batt fyrir naflastreng. Hendur hans hafa skolfið þegar hann hélt á smálífinu í lúkunum og vafði klæði um barnið til að varna næturkælunni að komast að því. Hann hefur sett það í móðurfang þegar hún bar það fyrst að brjósti. Jósef hafði atvinnu af smíðum en við vitum ekkert um hvað hann smíðaði eða hvernig verkmaður hann var. Væntanlega var Jósef ekki mállaus, en þó er ekki eitt einasta orð haft eftir honum í guðspjöllunum. Jesús var fullkominn snillingur í samræðum og örlátur í samskiptum og væntanlega hefur Jósef lagt til þeirrar hæfni.

Maðurinn á bak við konuna Aukaleikarinn í jólasögunni er í raun aðalleikari. Hann er maðurinn á bak við konuna. Hann rataði siðklemmu og brást stórmannlega við vanda festarkonu sinnar. Vegna manndóms og karlmennsku kastaði hann af sér karlrembunni og ákvað að axla ábyrgð á aðstæðum þeirra Maríu. Hann veik sér aldrei undan að taka erfiðar ákvarðanir og fara langar ferðir ef það mætti verða til að vernda líf og hamingju fjölskyldu hans. Jósef er fyrirmynd um karlmennsku í jafnvægi. Í miðju glimmerskreyttrar draumafrásögu er saga um sterkan mann, sem þorði. Sá Jósep hafði karlmannslund í lagi.

Draumar Jósefs Brasilíski ritjöfurinn Paulo Coelho opnaði augu mín fyrir hve fáir draumamenn eru í Nýja testamentinu. Í Gamla testamentinu er fjöldi drauma og draumspakra en í því nýja fyrst og fremst Jósef. Í guðspjöllunum er aðeins sex sinnum sagt frá draumförum. Í fjórum af þessum sex tilvikum var það Jósef sem dreymdi. Hann var tengdur dýptum tilverunnar og tók mark á sínum innri manni. Draumar hans breyttu afstöðu hans, skoðun og stefnu. Því var lífi Jesú bjargað.

Í fyrsta lagi ákvað Jósef að skilja ekki við Maríu vegna óléttunnar. Samkvæmt sið og stöðlum samtíðarinnar hefði Jósef átt að rifta trúlofuninni. En hann hlustaði á draum sinn og þorði að gera annað en það, sem nágrannar hans ætluðust til. Svo dreymdi hann í Betlehem að hann ætti að drífa sig með sitt fólk til Egyptalands. Ættmennin hafa væntanlega álitið það vera maníukast að rjúka í slíka óvissuferð með ungabarn. Og maður með snefil af bisnissviti hefð neitað að hlaupa svo frá verkum sínum og skyldum. En Jósef var reiðubúinn að hlusta á kall til heilla þótt það kostaði hann mikið. Þriðja skiptið fáum við að heyra af þessum draumajóa þegar hann var búinn að koma sér fyrir í Egyptalandi, var væntanlega í góðri vinnu og átti til hnífs og skeiðar. Enn einu sinni hlustaði hann á boðskap sem kom honum þó illa. En hann lagði í ´ann og enn einu sinni fékk hann bendingu í draumi um að fara heim í þorpið í Galíleu (og stoppa ekki á Jerúsalemsvæðinu, nefnt Júdea í Nt.).

Draumafyrirmynd Aðalpersónur í jólasögunni og þar með í allri kristninni eru María og Jesús. En vert er að sjá hinn trausta Jósef. Hann er flottur. Ég met mest hversu tengdur hann var sínum innri manni. Hann þorði að breyta um skoðun. Hann sinnti eins og milljarðar fólks fyrr og síðar öllum þessum hversdagslegu skylduverkum eins og við hin en hann átti í sér vilja og getu til að axla ábyrgð í vondum aðstæðum, efla þar með líf annarra, ekki aðeins síns fólks heldur veraldarinnar. Að hlusta á drauma er okkur nauðsyn og veröldinni lífsnauðsyn.

Draumur Guðs Á jólanótt megum við gjarnan vitja stærsta draums veraldar, sem er stærri en okkar eigin draumur. Hver er hann? Það er draumur Guðs um hamingju, gleði og réttlæti handa öllum mönnum. Guð dreymir þig, bæði daga og nætur, dreymir að þér líði vel, að þú njótir elsku og hamingju, í einkalífi og vinnu.

Þegar Jósef tók með skjálfandi höndum hið litla líf í fangið var Guð að birta elskugerð veraldar, túlka drauminn um lífið og heiminn. Hið varnarlausa barn tjáir sögu um, að Guð lætur sig veröldina varða, vitjar fólks í raunverulegum aðstæðum en ekki bara í andlegri heilaleikfimi.

Vitjaðu draumsins þíns Eftir stutta stund ferð þú heim. Flestir setjast að borði með sínum nánustu. Á barnaheimilum verða engar langsetur! Pakkar bíða og pappír mun fljúga, hlátrar gella, óp hljóma og kossar smella. Margir munu fá draumagjafir. Svo hljóðnar allt í kvöldlok. Þá skaltu setjast niður, leyfa kyrrunni að koma til þín og taka upp þína eigin gjöf – gjöfina hans Jósefs. Hún er að draumur þinn komi til þín. Sestu niður og spyrðu þig um þinn eigin draum, leyfðu honum að koma upp. “Hvað er mitt hlutverk, hvað geri ég til að lifa vel? Hver er mín lífshamingja? Er eitthvað í lífi mínu, sem hindrar að ég sé hamingjusamur eða hamingjusöm?”

Vegna þess að Jósef hlustaði á drauma sína bjargaði hann Maríu, Jesúbarninu og hamingju sinni. Í kvöld, þegar storm tilfinninganna lægir, vitjar hann þín og spyr þig um leið þína og lífssamhengi. Hlustaðu á drauminn um gleðiefni þín, köllun þína.

Þú mátt vita, að Guð dreymir þig og sá draumur situr í þér - draumur um lífshamingju. Jósef þorði – leyfðu draumi Guðs um þig að rætast. Það er besti og stærsti pakkinn við tréð, það er alger draumur til lífs.

Í Jesú nafni – amen.

Hugleiðing við aftansöng í Neskirkju 24. desember 2007, kl. 18.

Lexía Mika 5.1-3 En þú, Betlehem í Efrata, ein minnsta ættborgin í Júda, frá þér læt ég þann koma er drottna skal í Ísrael. Ævafornt er ætterni hans, frá ómunatíð. 2Því verður þjóðin yfirgefin þar til sú hefur fætt er fæða skal. Þá munu þeir sem eftir lifa ættmenna hans snúa aftur til Ísraels lýðs. 3Hann mun standa sem hirðir þeirra í krafti Drottins, í mætti nafns Drottins, Guðs síns, og þeir óhultir verða. Þá munu menn mikla hann allt til endimarka jarðar.

Guðspjall Lk.2.1-14 1En það bar til um þessar mundir að boð kom frá Ágústusi keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. 2Þetta var fyrsta skrásetningin og var gerð þá er Kýreníus var landstjóri á Sýrlandi. 3Fóru þá allir til að láta skrásetja sig, hver til sinnar borgar. 4Þá fór og Jósef úr Galíleu frá borginni Nasaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betlehem, en hann var af ætt og kyni Davíðs, 5að láta skrásetja sig ásamt Maríu heitkonu sinni sem var þunguð. 6En meðan þau voru þar kom sá tími er hún skyldi verða léttari. 7Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagði hann í jötu af því að eigi var rúm fyrir þau í gistihúsi.

8En í sömu byggð voru hirðar úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar. 9Og engill Drottins stóð hjá þeim og dýrð Drottins ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög hræddir 10en engillinn sagði við þá: „Verið óhræddir, því, sjá, ég boða yður mikinn fögnuð sem veitast mun öllum lýðnum: 11Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. 12Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og liggjandi í jötu.“ 13Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita sem lofuðu Guð og sögðu: 14Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu og velþóknun Guðs yfir mönnum.