Sálmabók

148. Hve líknarfullur lausnarinn

Hve líknarfullur lausnarinn
að luktum dyrum kemur inn.
Hann birtist til að boða frið
og blessa hið skelfda vinalið.
Kom einnig, Drottinn, inn hjá mér
sem óróleik í hjarta ber
og segðu: Friður sé með þér.

T Björn Halldórsson – Sb. 1886
L Hohenfurth um 1450 – Horn 1544 – Sb. 1589
In natali Domini / Da Christus geboren var / Singen wir aus Herzensgrund
Sálmar með sama lagi 114 298 412 432b 98
Eldra númer 160
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is