Sálmabók

234. Minn Guð og Herra, hjartað mitt

Minn Guð og Herra, hjartað mitt
þinn helgidóm lát vera
og dýrstan unað orðið þitt
mér alla daga bera.
Ég geng þá fús í heilagt hús
að hlýða röddu þinni
og heim svo fer að eftir er
þitt orð í sálu minni.

T Björn Halldórsson – Sb. 1886
L Andreas P. Berggreen 1844 – Sb. 1871
Naturen holder pinsefest
Sálmar með sama lagi 177 754
Eldra númer 242
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is