Sálmabók

343a. Andi þinn er sem úðaregnið

1 :,: Andi þinn er sem úðaregnið,
örar mitt hjarta slær,
eyðilönd verða aldingarðar,
allt blómstar og grær. :,:

2 Undur lífs, lækning það er,
lausnarorð felur í sér.
Söngur nýr, sem hljóma fer,
sigurlag ómar í mér.

3 Leiðarstef á lífsins braut
ljós þitt er í sæld og þraut.
Auðnin varð að unaðsreit.
Engan garð fegri ég leit.

T Roozbeh Najarnejad, 2017 – Terry MacArthur, 2017 – Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson 2021
Chon rizad / As the rain of your spirit pours out
L Roozbeh Najarnejad, 2017
Chon rizad
Sálmar með sama lagi 343b 343c

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is