Sálmabók

682. Ó, þá náð að eiga Jesúm

1 Ó, þá náð að eiga Jesúm,
einkavin í hverri þraut.
Ó, þá heill að halla mega
höfði sínu' í Drottins skaut.
Ó, það slys því hnossi' að hafna,
hvílíkt fár á þinni braut
ef þú blindur vilt ei varpa
von og sorg í Drottins skaut.

2 Eigir þú við böl að búa,
bíðir freistni, sorg og þraut,
óttast ekki, bænin ber oss
beina leið í Drottins skaut.
Hver á betri hjálp í nauðum?
Hver á slíkan vin á braut,
hjartans vin sem hjartað þekkir?
Höllum oss í Drottins skaut.

3 Ef vér berum harm í hjarta,
hryggilega dauðans þraut,
þá hvað helst er Herrann Jesús
hjartans fró og líknar skaut.
Vilji bregðast vinir þínir,
verðirðu' einn á kaldri braut,
flýt þér þá að halla' og hneigja
höfuð þreytt í Drottins skaut.

T Joseph M. Scriven 1855 – Matthías Jochumsson – Sb. 1886
What a Friend We Have in Jesus
L Charles C. Converse 1868 – JH 1891
CONVERSE/ What a Friend We Have in Jesus
Sálmar með sama lagi 678 775
Eldra númer 43
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is