Sálmabók

90. Guðs orð er ljós

1 Guðs orð er ljós er lýsir
í lífsins dimmu hér
og ljúfur leiðarvísir
það lífs á vegum er.
Það lýsa látum vér
að sannleiksbraut vér sjáum
og sælumarki náum
með ljóssins helgum her.

2 Guðs orð er sverð er særir
og sundur hjörtun sker,
um synd og sekt það kærir
og sakir á oss ber.
En oss það einnig ver,
með því gegn veröld verjumst
og vonsku móti berjumst.
Það sverð oss sigur lér.

3 Guðs orð er lind er líknar
og lækning veikum tér,
það syndarana sýknar
og svölun hjörtum lér.
Ó, hversu indælt er
það blessað orð að eiga
og ætíð finna mega
þar svölun handa sér.

4 Guðs orð er raust er rómar
hve réttvís Drottinn er
en einnig blítt það ómar
að aldrei náð hans þver.
Það oss þann boðskap ber
að Guð oss fyrirgefur,
að Guð oss búið hefur
á himnum hús með sér.

5 Guðs orð er líf og andi
með undrakraft í sér,
Guðs orð er ævarandi
þá annað gjörvallt þver.
Þann kjörgrip kjósum vér,
í hreinu hjarta geymum
það hnoss og aldrei gleymum
að best það arfleifð er.

T Valdimar Briem – Sb. 1886
L Lyon 1557 – Sb. 1589
Helft mir Gottes Güte preisen
Sálmar með sama lagi 490 525
Eldra númer 294
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Heb. 4.12

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is