Raddir barna á Gaza munu heyrast í Bústaðakirkju

22. febrúar 2024

Raddir barna á Gaza munu heyrast í Bústaðakirkju

Barn horfir á eyðilegginguna á Gaza

Raddir barna á Gaza munu heyrast í Bústaðakirkju næstkomandi sunnudag þann 25. febrúar klukkan 13:00.

Unicef hefur safnað saman og birt reynslusögur barna frá Gaza og mun sr. Daníel Ágúst Gautason æskulýðsprestur í Fossvogsprestakalli miðla völdum reynslusögum í prédikun sinni í helgihaldi dagsins í Bústaðakirkju.

Leiðtogar úr æskulýðsstarfi Fossvogsprestakalls munu jafnframt ljá þeim raddir sínar, ásamt sr. Daníel Ágústi.

Sr. Daníel Ágúst segir að „þau sem líða helst í stríði séu þau sem síst skyldi, börnin og aðrir í viðkvæmri stöðu, hvort sem það er í Úkraínu, á Gaza eða hvar sem ófriður ríkir.

Nauðsynlegt sé að hlusta á reynslu þeirra sem líða, reynslu barnanna og að samfélagið og heimurinn allur heyri raddir barnanna.“


Guðspjallatexti sunnudagsins, sem er 2. sunnudagur í föstu fjallar um bænina.

Og sr. Daníel Ágúst heldur áfram:

„Jesús miðlar þeim djúpa sannleika í frásögn sunnudagsins að stundum er bænin eini farvegurinn sem við höfum gagnvart raunum mannlífsins.

Kirkjan er vettvangur þess að við komum saman, berum hvert annað á bænarörmum, biðjum fyrir friði í heiminum, biðjum fyrir friði á Gaza, biðjum fyrir börnunum á Gaza, að þeim verði bjargað, að þau muni eiga sér farsæla framtíð.

Til viðbótar við allt hitt sem við gerum og leggjum að mörkum til góðs fyrir mann og heim, líf og framtíð, er mikilvægt að sameina kraftana í bæn.

Biðja algóðan Guð um frið, því með samstilltu bænaátaki geta kraftaverkin gerst“

segir sr. Daníel Ágúst.

 

slg



Myndir með frétt

  • Barnastarf

  • Kirkjustaðir

  • Kirkjustarf

  • Messa

  • Prestar og djáknar

  • Alþjóðastarf

Addis9.jpg - mynd

Vottar vonar og réttlætis: Árlegur stjórnarfundur Lútherska heimssambandsins

23. jún. 2025
Árlegur stjórnarfundur Lútherska heimssambandsins fór fram dagana 12.–16. júní í höfuðborg Eþíópíu.
Sr. Pétur Ragnhildarson

Sr. Pétur Ragnhildarson ráðinn sóknarprestur

13. jún. 2025
...í Breiðholtsprestakalli
Dómkirkjan í Reykjavík - mynd: hsh

Prestsvígsla í Dómkirkjunni

12. jún. 2025
...sunnudaginn 15. júní