Yfirlýsing frá biskupafundi Þjóðkirkjunnar

18. maí 2025

Yfirlýsing frá biskupafundi Þjóðkirkjunnar

Biskupafundur Þjóðkirkjunnar hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu.

„Sælir eru friðflytjendur“ (Matt. 5.9)

Biskupafundur tekur undir yfirlýsingu forsætisráðherra og fleiri þjóðarleiðtoga og utanríkisráðherrum um að koma þurfi í veg fyrir fleiri hörmungar á Gaza. Við skorum á ríkisstjórn Íslands og Alþingi að stíga fast til jarðar þegar kemur að stöðunni á Gaza. Hún er löngu komin út yfir öll mannúðleg mörk.

Allar manneskjur eru skapaðar í Guðs mynd og hver einasta manneskja er jafn dýrmæt. Frá 7. október 2023 hafa tugir þúsunda látið lífið í þýðingarlausum stríðsátökum. Neyðaraðstoð hefur verið haldið frá íbúum Gaza síðan í janúar. Manngerð hungursneyð geisar og saklaust fólk lætur lífið hvern dag. Kristnar kirkjur geta ekki staðið hjá og þagað og það gera biskupar Þjóðkirkjunnar ekki heldur.

Á tímum sem þessum upplifum við okkur gjarnan áhrifalaus en það sem við getum öll gert er að láta náunga okkar varða hver sem hann er og hvar sem hann er í heiminum og þegja ekki þegar okkur er misboðið. Við getum beðið fyrir sáttargjörð og friði. Við getum haft áhrif með því að styðja hjálparstarf með einum eða öðrum hætti. Við getum minnt á, hvar sem við erum stödd hverju sinni, að ofbeldið sem geisar nú fyrir botni Miðjarðarhafs getur aldrei leitt þessi átakamál til lykta– heldur er ofbeldið sjálft vandamálið.

Sama hve máttlaus við kunnum að upplifa okkur gagnvart atburðum utan landsteina Íslands megum við aldrei sætta okkur við að ofbeldi, hvar sem er í heiminum, sé á einhvern hátt ásættanlegt eða eðlilegur hluti af tilveru okkar. Slík uppgjöf fer gegn öllu því sem kristin trú stendur fyrir.

Á þetta mun biskupafundur Þjóðkirkjunnar minna þar til:

  • öllum árásum er hætt og saklausu fólki þyrmt.
  • öllum gíslum er sleppt.
  • að opnað er fyrir neyðaraðstoð til svæðisins.

Þá hvetur biskupafundur íslensk stjórnvöld til þess að halda áfram að beita sér fyrir sáttargjörð og friði og að alþjóðalögum verði fylgt, að komið verði á varanlegu vopnahléi og leið að réttlátum friði verði fundin sem tryggir öllum manneskjum á svæðinu færi á að lifa við réttlæti og varanlegan frið.

Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands
Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti
Gísli Gunnarsson, vígslubiskup á Hólum í Hjaltadal

    Logo.jpg - mynd

    Opið fyrir umsóknir um styrki úr kynningar-, fræðslu- og útgáfusjóði Þjóðkirkjunnar

    06. maí 2025
    Hlutverk sjóðsins að styðja við og efla kynningar- og fræðslustarf kirkjunnar svo og útgáfustarfsemi á því sviði.
    Sr. Karen Hjartardóttir

    Sr. Karen Hjartardóttir ráðin

    05. maí 2025
    ...í Setbergsprestakall
    Screenshot 2025-05-01 at 16.03.32.png - mynd

    Ályktanir presta- djáknastefnu 2025

    01. maí 2025
    Þrjár ályktanir voru samþykktar af presta- og djáknastefnu. Þær má sjá hér.