Sálmabók

544. Æ, minn Guð, lát ávallt skarta

Æ, minn Guð, lát ávallt skarta
auðmýktina' í brjósti mér,
skapa' í mér hið hreina hjarta,
helgan bústað, vígðan þér.
Lát mig kenna þörf og þrá
þinnar náðar, ein sem má
færa mig úr fjötrum nauða,
frelsa mig af synd og dauða.

T Björn Halldórsson – Sb. 1886
L Johann B. König, 1738 – Ssb. 1936
Der am Kreuz ist meine Liebe / Sei mir tausendmal gegrüßet
Sálmar með sama lagi 196 426
Eldra númer 542
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is