Sálmabók

548. Þinn vil ég, Jesú, jafnan vera

1 Þinn vil ég, Jesú, jafnan vera,
þig jafnan elska' af hjartans rót,
ég vil þitt ok með auðmýkt bera
og allri freistni stríða mót,
ég auðsveipinn vil iðja hér
það allt sem heimtar þú af mér.

2 En viljinn er í veiku gildi,
mig vantar kraftinn, Drottinn minn,
því kom til mín með kærleiks mildi
og kraft af hæðum veit mér þinn.
Til sérhvers góðs ég ófær er
ef ei þú, Jesú, hjálpar mér.

3 Æ, styrk þú viljann, styrk þú trúna,
æ, styrk mig heimsins vélum gegn,
æ, styrk mig, leið mig braut mér búna
þótt brjóstið hrelli sorgin megn,
æ, styrk þú mig í stríði' og neyð,
æ, styrk þú mig í lífi' og deyð.

T Guðmundur Einarsson – Sb. 1871
L Georg Neumark, 1657 – PG 1861
Wer nur den lieben Gott lässt walten
Sálmar með sama lagi 183 185 458 564 88
Eldra númer 363
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is