Biðjum:
Gef á jörðu góðar tíðir,
gef í heimi frið.
Ljúk upp þínum leyndardómum
læst svo opnist hlið! (Sl. 334:3a). Amen.
Náð
sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi. Amen.
Textarnir miðla von
Textar
Biblíunnar miðla von.
Von
um að lífið hafi tilgang. Von um að réttlæti Guðs muni sigra að lokum. Von um
að lífið sé sterkara en dauðinn, að lífið sé eilíft. Von um að friðurinn sé
handan hornsins. Von um að kærleikurinn ríki og muni ríkja.
Heimurinn
birtir okkur stundum andhverfu þessa. Ófriður er tíður, atburðir verða sem vekja
okkur ótta og jafnvel viðbjóð, þar sem mannleg illska virðist svo botnlaus,
börn eru drepin og fólki vísvitandi stefnt í hættu á hungurmorði, svo eitthvað
sé nefnt. Þetta þekkjum við öll, sem fylgjumst eitthvað með atburðum á
heimssviðinu. Svo þurfum við ekki einu sinni að horfa yfir svo vítt svið, við
getum litið til okkar eigin samfélags, jafnvel okkar eigin fjölskyldu og
jafnvel horft í okkar eigin barm.
Kannski
er það þess vegna sem textar Biblíunnar miðla von, því þörfin á slíkum boðskap
er svo knýjandi, inn í mannlegar aðstæður. Þ.e. þörfin á stuðningi og styrk
gagnvart þeim ógnum sem blasa við og við sjálf erum stundum hluti af.
Sannleikurinn
er sá
Ekki
er það aðeins svo að þörfin sé til staðar, á einhverjum boðskap, heldur miðla
textarnir ákveðnum sannleika um lífið og heiminn.
Sannleikurinn
sem textarnir boða er sá að kærleikans hugur er að baki heiminum. Það er hugur
og máttur sem lætur sig varða um heiminn, elskar heiminn og alla menn.
Sannleikurinn
er einnig sá að þar sem voninni er lyft upp geta kraftaverkin gerst. Þar sem
trúin er ræktuð og iðkuð erum við að velja að njóta samfylgdar við hið góða.
Það er nefnilega hægt, að velja að eiga sér samfylgd við hið góða. Það þýðir
ekki að slæmir hlutir hætti að geta gerst, heldur að máttur okkur æðri getur þá
orðið okkur styrkur í erfiðum aðstæðum.
Það
er nefnilega gríðarlegur styrkur fólginn í því að leggja okkar áhyggjur og
bænarefni fram fyrir kærleiksríkan Guð, sem lofar að svara, sem lofar í hinum
vonarríku textum að svara þeim bænum sem til hans er beint. Reynsla kynslóðanna
er sú að Guð svari bænum á kærleikans máta.
Bænirnar
gera það ekki endilega að verkum að raunheimurinn breytist, þ.e. enn þá verða
bananarnir bognir og gulir á litinn. Hins vegar er það svo hjá þeim sem velur
að eiga sér bænasamfélag við hið góða, að ekkert í heiminum helst í raun
óbreytt. Allt breytist til batnaðar þegar okkur ber gæfa til að eiga samfylgd
við hið góða hér í heiminum. Á meðan allt í heiminum helst óbreytt, verður
heimurinn aldrei samur hjá þeim sem ræktar trúna.
Bænin
Og
þó, með trúnni getur raunheimurinn einnig breyst. Það er kannski ekki endilega
tilgangurinn með því að trúa eða rækta trúna, heldur getur það verið afleiðing
þess.
Bænin
gerir það að verkum að við stillum hugann. Líkt og við stillum kompásinn, þá
stillum við hugann og kraftinn sem í okkur býr. Við setjum hug okkar og krafta
í þá átt sem varðar okkur mest. Við biðjum upphátt og í hljóði til þess Guðs
sem heyrir og svarar bænum.
Svarar
bænunum, já, það er loforð Guðs að Guð muni svara bænunum. Svara, ekki endilega
eftir okkar höfði, heldur eftir sínum vilja.
Vilji
Guðs.
Vonarrík
framtíð
Eins
og Jeremía spámaður segir svo undur fallega, fyrir munn Guðs: Því að ég
þekki sjálfur þær fyrirætlanir sem ég hef í hyggju með yður, … , fyrirætlanir
til heilla en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð.
Já,
það er þessi Guð.
Þessi
Guð sem vill veita vonarríka framtíð.
Það
er von, þrátt fyrir allt.
Það
er von, þótt vonleysi geti blasað við.
Þá
er von.
Hvað
hefur Guð í hyggju?
Guð
hefur eitthvað í hyggju. Það er kærleikans hugur að baki lífinu og tilverunni. Guð
hefur fyrirætlanir til heilla, en ekki til óhamingju, að veita vonarríka
framtíð.
Textinn
er ætlaður þér.
Vonin
er þér ætluð, einmitt núna, í þeim aðstæðum sem þú finnur þig í. Vonin sem Guð
vill veita, er þér ætluð.
Textarnir
miðla þessum tímalausa sannleika um nærveru Guðs. Á einhvern undursamlegan máta
er Guð að baki lífinu. Jörðin er kærleikans vettvangur þar sem lífið sprettur
fram.
Kærleikurinn
gefur öðrum jafnframt rétt og rödd
Svo
virðist sem ástin og kærleikurinn sé undirtónninn í tónverki lífsins, sá tónn
sem lætur alla hina tónana eiga sér samhljóm. Og ef við lítum til náttúrunnar
þá gætum við sagt að það sé líkt og kærleikurinn sé að baki blaðgrænunni, þar
sem ljóstillífunin á sér stað og súrefnið verður til. Og ef við horfum til
himintunglanna þá gætum við sagt að það sé kærleikurinn sem geri það að verkum
að afstaða himintunglanna sé slík að lífvænlegt sé á jörðinni. Ég held það sé
einhver slíkur skilningur á kærleikanum sem býr að baki orðunum í Fyrra
Kórintubréfinu: Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.
Þar
er það gríska hugtakið agape, sem við þýðum sem kærleikur, á okkar ylhýra. Gríska
orðið merkir þann kærleika sem umlykur allt, er í öllu og ræður framgangi alls
hins góða í heiminum. Þar er átt við hinn guðlega kærleika sem í öllu lífi býr
og varðar framgang þess til góðs.
Martin
Luther King sagði:
Ofar
fjölbreytileika tímans
stendur
hinn eilífi Guð
og
speki hans leiðir okkur,
styrkur
hans verndar okkur
og
elska hans bjargar okkur.
Og
svo var það móðir Teresa sem sagði:
Verið
lifandi dæmi um gæsku Guðs.
Gæska
í andlitum ykkar,
gæska
í augum ykkar,
gæska
í brosi ykkar
og
gæska í ykkar hlýju kveðju.
Vilborg
Dagbjartsdóttir skrifaði:
Alls
staðar finn ég þig,
yndisleg
návist þín
umvefur
mig sem ljúfur sumarvindur.
Jörðin
gengur sinn veg
gegnum
myrkur, geimryk og glóandi sindur.
Hún
snýr sér dansandi' í hring
en
dýrð þín er, Drottinn,
uppi'
yfir mér og allt um kring.
Og
svo er það friðarleiðtoginn í Suður Afríku, Nelson Mandela sem sagði:
Við
fæddumst til þess að sannreyna
dýrð
Guðs sem í okkur býr.
Hún
býr ekki bara í fáeinum á meðal okkar,
hún
er í sérhverjum einstaklingi.
Og
þegar við látum ljós okkar skína
gefum
við, án þess að vita það,
öllum
öðrum heimild
til
að gjöra hið sama.
Það
eru hin vonarríku skilaboð sem kristnin boðar. Allir menn eru elskaðir og eiga
tilverurétt. Þann sama tilverurétt og hvert og eitt okkar.
Megi
kærleikurinn snerta við þér. Megi Guð svara bænum þínum á þann máta að það
verði þér ljóst í lífinu miðju.
Dýrð sé Guði, föður og syni og heilögum anda. Svo sem var í upphafi, er og verður um aldir alda. Amen.
Takið postullegri kveðju: Náðin Drottins vors Jesú Krists, kærleiki Guðs og samfélag heilags anda, sé með yður öllum. Amen.
Textar: Jer 29. 11-14a, 1Tím 2.1-6a, Jóh 16.23b-30.
Messa í Grensáskirkju kl. 11
Guðsþjónusta í Bústaðakirkju kl. 20
sunnudaginn 25. maí 2025, 5. sd. páskatímans